Tónleikafélag Austurlands stendur nú á sínu níunda starfsári. Félagið var stofnað árið 2017 með það að markmiði að efla tónleikahald á Austurlandi og láta tónlistina um leið styðja við mikilvægt samfélagslegt málefni.

Á hverju ári hefur félagið safnað saman tónlistarfólki af Austurlandi og víðar til tónleikahalds þar sem áhersla er lögð á samstöðu, sköpun og geðheilbrigðismál. Ágóði verkefnanna hefur runnið til góðra málefna, meðal annars til stuðnings geðheilbrigðisþjónustu og starfsemi Píeta á Austurlandi.

Í ár verður sjónum beint að einum áhrifamesta tónlistarmanni Íslands, Bubba Morthens. Fjölbreyttur hópur flytjenda kemur fram og flytur lög Bubba frá löngum og viðburðaríkum ferli hans. Tónleikarnir verða haldnir í Hátíðarsalnum Alþýðuskólanum á Eiðum þann 12. september. Húsið opnar klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00

Við hlökkum til að fagna níunda starfsári félagsins með tónlist Bubba og halda áfram því verkefni að sameina tónlistarlíf Austurlands og stuðning við mikilvæg málefni.

Miðar eru komnir í sölu í vefverslun Tónleikafélags Austurlands.

Fram koma:

Stebbi Jak Söngur
Kristó Jens Söngur
Benedikt Árni Pálsson Gítar
Logi Beck Trommur
Friðjón Ingi Þorlaugsson Gítar
Svandís Hafþórsdóttir Bassi

Elísabet Arna Gunnlaugsdóttir Trommur
Pálmi Stefansson Trommur
Friðrik Jónsson Gítar
Máni Valsson Gítar – raddir 
Ívar Andri Klausen Gítar
Kristinn Hardarson Hljómborð
Bergur Hallgrimsson bassi
Nanna Imsland raddir og söngur